30.01.2024
Haldið verður upp á dag leikskólans í öllum leikskólum landsins á ýmsan hátt.
Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og að kynna starfsemina út á við.
Við á leikskólastigi Stapaskóla ætlum að hafa opið hús frá kl. 9:30 – 10:30. Þá eru allir velkomnir að koma í heimsókn og sjá hvað fer fram í leikskólanum og jafnvel að taka þátt í leik barnanna.
Þann dag ætlum við líka að hafa fjólubláan dag þar sem fjólublár er litur Stapaskóla.
Lesa meira
29.01.2024
Í ár ákváðu nemendur Stapaskóla að skiptast ekki á gjöfum á litlu jólunum líkt og undanfarin ár heldur safna frjálsum framlögum og gefa til góðs málefnis. Nemendur kusu um hvaða málefni skyldi styrkja og úr varð að neyðarsöfnun UNICEF fyrir börnin á Gaza varð fyrir valinu.
Síðastliðinn föstudag, þann 26. janúar kom Birta María Sigurðardóttir fulltrúi UNICEF á Íslandi til okkar og veitti söfnun nemenda viðtöku. Nemendur söfnuðu 191.728 krónum og voru það nemendur í 5. og 6. bekk sem voru við afhendinguna.
Við í Stapaskóla erum afar stolt af nemendum okkar fyrir að fara þessa leið. Það er rík hefð fyrir því að skiptast á gjöfum síðasta skóladaginn fyrir jól og það er ekki sjálfsagt mál að þessi leið sé farin. Frábært framtak hjá nemendum skólans.
Lesa meira
26.01.2024
Á Þriðjudaginn í næstu viku, þann 30. janúar, verður samtalsdagur hér í Stapaskóla. Þá mæta nemendur með foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennurum. Þennan dag er því ekki hefðbundin skóli en frístundaheimillið Stapaskjól er þó opið á milli kl. 8:00 og 16:15 (fyrir þá sem eru skráðir).
Foreldrar / aðstandendur þurfa sjálfir að bóka viðtalið og er það gert í gegnum mentor. Nú þegar ættu þið að geta séð flís inn á mentor sem heitir foreldraviðtöl. Þegar klikkað er á hana geta foreldrar / aðstandendur bókað þann viðtalstíma sem hentar og í boði er.
Þegar foreldraviðtal er bókað í gegnum mentor þá er einnig hægt að skrifa skilaboð til kennara, t.d. ef óskað er eftir fjarfundi.
Ef foreldraviðtals-flísin birtist ekki hjá ykkur þegar þið opnið mentor þá er líklegt að þið séuð skráð inn á aðgangi barnsins þ.e. kennitölu þess og lykilorði. Nemendur sjá ekki foreldraviðtalsflísina á sínum aðgangi.
Við hvetjum ykkur til þess að mæta í viðtal með barninu ykkar á samskiptadeginum. Góð samskipti á milli heimilis og skóla eru lykillinn að góðum árangri og vellíðan barnanna.
Lesa meira
19.12.2023
Þá styttist í að allir nemendur og starfsfólk Stapaskóla fari í jólaleyfi.
Á morgun, 20. desember, eru litlu jól á grunnskólastigi, Nemendur mæta klukkan 10 og eiga notalega stund með samnemendum og kennurum sínum sem lýkur um 11. Eftir það eru nemendur komnir í jólafrí en mæta aftur 4. janúar 2024.
Á leikskólastigi er opið út föstudaginn 22. desember en þá hefst jólafrí fram til 2. janúar 2024.
Lesa meira
19.12.2023
Töluvert magn af óskilamunum liggur nú frammi við báða inganga skólans. Um er að ræða fatnað, skóbúnað, yfirhafnir, skólatöskur, íþróttatöskur, brúsa og sitthvað fleira. Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma við og fara í gegnum óskilamunina og athuga hvort að þarna sé leynist eitthvað sem tilheyrir ykkar barni. Farið verður með óskilamuni í rauða krossin eftir áramót.
Lesa meira
11.12.2023
Á aðventunni er skólastarfið brotið upp með ýmsum hætti og höfum við skapað hjá okkur þá hefð að vera með gluggaskreytingarkeppni Stapaskóla. Síðastliðinn föstudag voru úrslit keppninnar kynnt en til að dæma í keppninni voru fengnir fimm einstaklingar frá ólíkum stofnunum bæjarins. Dómnefndin dæmdi gluggaskreytingarnar eftir þremur þáttum, þ.e. sköpun, frumleika og jólaanda. Mikill metnaður var hjá nemendum fyrir keppninni og munaði litlu í úrslitum dómnefndar. Skólanum er skipt niður í þrjá hópa sem etja kappi, það eru yngsta stig þar sem nemendur á leikskólastigi og í 1. – 2. bekk etja kappi, svo eru það nemendur í 3. – 6. bekk og loks unglingastig eða 7. – 10. bekkur. Sigurvegarar í jólaglugga Stapaskóla 2023 voru 1. bekkur á yngsta stigi, 3. bekkur á miðstigi og 8. bekkur á unglingastigi. Dómnefndin hafði orð á því að þessi keppni hefði verið fjölbreytt og skemmtileg og að það væri virkilega gaman að sjá handbragð nemenda um allan skóla.
Lesa meira
16.11.2023
Í dag, þann 16. nóvember var haldið upp á Dag íslenskrar tungu hér í Stapaskóla. Dagurinn var fjölbreyttur hjá nemendum en allir árgangar brutu upp daginn með skemmtun og gleði.
1. og 2. bekkur auk Óskasteins á leikskólastigi fengu Höllu Karen í heimsókn. Hún leiklas söguna um Grýlu og söng nokkur lög með nemendum. Vakti þetta mikla ánægju og gleði á meðal barnanna.
3. – 6. bekkur koma fram á sal í skemmtilegum atriðum sem þau hafa undirbúið undanfarna daga, má þar helst nefna söng og ljóðalestur. Auk þess sem sigurvegarar Stóru upplestrarkeppninnar frá því í vor, þær Íris Brynja og Dagbjört Dóra, fluttu ljóð. Notaleg stund á sal og eiga nemendur og kennarar þeirra hrós skilið fyrir vel undirbúin og skemmtileg atriði.
Á unglingastigi var blásið til spurningakeppni á milli nemenda í 10. bekk og kennara. Spurningahöfundur og dómari var Kormákur Andri kennari í 9. bekk og voru spurningarnar fjölbreyttar og skemmtilegar. Það var töluverður hamagangur í öskjunni þegar bjölluspurningarnar voru bornar upp og keppst var um að ná bjöllunni. Að þessu sinni var það lið kennara sem bar sigur úr býtum. Auk þess afhenti 8. bekkur nemendum í 7. bekk upplestrarkeflið en á Degi íslenskrar tungu hefst undurbúningur fyrir Stóru upplestrarkeppnina ár hvert og er það alltaf 7. bekkur sem tekur þátt í þeirri keppni.
Dag íslenskrar tungu er haldinn ár hvert á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Skáldið og náttúrufræðingurinn Jónas Hallgrímsson var með lærðustu mönnum síns tíma. Hann var með guðfræðipróf, stundaði nám í lögfræði og lauk síðar prófi í náttúruvísindum frá Kaupmannahafnarháskóla. Jónas fór í rannsóknarferðir um Ísland og skrifaði dagbækur og skýrslur um íslenska náttúru. Auk vísindastarfa var Jónas virkur í útgáfu tímaritsins Fjölnis, hann orti fjölmörg kvæði, samdi sögur og þýddi erlend skáldverk á íslenska tungu
Lesa meira