- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Í Stapaskóla er kennt eftir að ferðum Byrjendalæsis í 1.–3. bekk. Kennarar eru í samstarfi við skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri og sækja þangað námskeið og ráðgjöf um aðferðina. Allir umsjónarkennarar á yngsta stigi taka þátt í starfinu.
Byrjendalæsi er kennsluaðferð sem var mótuð og þróuð á skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri undir forystu Rósu Eggertsdóttur. Meginmarkmið aðferðarinnar er að börn nái sem fyrst árangri í lestri.
Grunnstoðir Byrjendalæsis eru:
Í Byrjendalæsi vinna kennarar eftir fyrirfram gerðum kennsluáætlunum sem ná yfir eina eða fleirri vikur. Í upphafi hverrrar lotu les kennari texta, sögu, ljóð og innihald textans er rætt. Síðan er unnið með stafi, stafsetningu og málfræði. Lykilorð úr textanum er valið sem útgangspunktur fyrir þá þætti sem kenna á í lotunni.
Hér má lesa meira um kennsluaðferðina
Þátttaka foreldra skiptir miklu máli fyrir lestrarnám barna. Þess vegna er lögð rík áhersla á gott samstarf heimilis og skóla.