- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Læsi fyrir lífið er þróunarverkefni sem miðar að því að efla læsi nemenda á mið- og unglingastigi og gera læsi að órjúfanlegum hluta náms í öllum námsgreinum.
Í verkefninu er unnið markvisst með lestur og lesskilning, lesfimi, orðaforða, ritun og miðlun ásamt samræðu, tjáningu og hlustun. Kennarar nýta fjölbreyttar og gagnreyndar kennsluaðferðir sem styðja nemendur við að skilja námsefni, tjá hugsanir sínar og byggja upp færni sem nýtist þeim þvert á námsgreinar.
Mikil áhersla er lögð á að mæta nemendum þar sem þeir eru staddir, efla áhuga þeirra og virkni í námi og skapa fjölbreyttar námsleiðir innan skólastofunnar.
Markmiðið er að læsi sé ekki einungis viðfangsefni í íslenskutímum heldur hluti af öllu námi – alla daga. Þannig byggjum við markvisst upp sterkan grunn fyrir nám, samskipti og þátttöku nemenda, bæði í skólanum og til framtíðar.