Skemmtum okkur fallega á Ljósanótt

Í morgun fengum við í heimsókn til okkar íþrótta- og tómstundarfulltrúa Reykjanesbæjar, fulltrúa frá Fjörheimum og fulltrúa frá lögreglunni en þau voru með forvarnarfræðslu fyrir nemendur í 8. - 10. bekk. Fræðslan snéri að vopnaburði ungmenna og viðbragði forvarnaraðila um komandi Ljósanæturhelgi. 

Ljósanótt er menningar- og fjölskylduhátíð í Reykjanesbæ sem fram fer árlega fyrstu helgina í september. Fjölskyldur eru hvattar til þess að skemmta sér saman og njóta þeirrar fjölbreyttu dagskrár sem verður í boði.

Jákvæð samvera með fjölskyldunni skapar öryggi og hefur mikið forvarnargildi fyrir börn og ungmenni.

Þann 1. september tók vetrarútivistartíminn gildi og nú mega börn 12 ára og yngri ekki vera ein úti eftir kl. 20:00 og ungmenni 13 til 16 ára mega ekki vera ein úti eftir kl. 22:00. Þeim tilmælum er beint til foreldra og forráðamanna að tryggja að ungmenni séu ekki ein eftirlitslaus á hátíðarsvæði eftir kl. 22:00.

"Vopnaburður á almannafæri er bannaður skv. 30. gr. vopnalaga. Brot geta varðað sektum eða fangelsi, allt að fjórum árum.

Í skóla- og frístundastarfi er allur vopnaburður stranglega bannaður og ef barn verður uppvíst að því að bera vopn er það gert upptækt, haft samband við foreldra og málið tilkynnt til lögreglu og barnaverndar í öllum tilvikum".

Skemmtum okkur fallega saman á Ljósanótt 2024.