21.09.2020
Elstu nemendur leikskólastigs fengu heimsókn frá Bunavörnum Suðurnesja í síðustu viku.
Markmiðið með heimsókninni var að fræða börnin um brunavarnir. Logi og Glóð er forvarnarverkefni þar sem slökkviliðsmenn koma og spjalla við nemendur um eldvarnir á heimilinu og horft er á stutta mynd um slökkviálfana Loga og Glóð. Nemendur fá að sjá slökkviliðsmanninn í gallanum, með reykgrímu og fá að handleika stútinn á brunaslöngunni.
Nemendur eru þá orðnir aðstoðarmenn slökkviliðsins og í því felst að þau far
a reglulega um skólann og yfirfara brunavarnir. Nemendur fá svo viðurkenningarskjal í lok skólaárs.
Lesa meira
18.09.2020
Á mánudaginn 21. september til kl.11.00 á miðvikudaginn er aðgengi að skifstofunni lokað vegna framkvæmda. Ef þið þurfið að ná sambandi við skólann þá getið þið hringt í 420-1600 eða sent tölvupóst á stapaskoli@stapaskoli.is
Lesa meira
11.09.2020
Aðalfundur foreldrafélagsins verður haldin fimmtudaginn 17. september kl. 20:00 í matsal bráðarbirgðarhúsnæðis Stapaskóla.
Dagskrá
1. Kosning stjórnar
2. Önnur mál
Lesa meira
10.09.2020
Kæru foreldrar
Leikskólastig Stapaskóla verður lokað frá klukkan 11 þriðjudaginn 6. október vegna starfsmannafundar og sameiginlegrar vinnu með starfsfólki grunnskólastigs.
Lesa meira
08.09.2020
Föstudaginn 11. september er starfsdagur hjá nemendum í 1. - 4. bekk. Frístundaheimilið Stapaskjól er lokað.
Lesa meira
25.08.2020
Í dag hófst fyrsti skóladagur hjá nemendum 3 ára og eldri við Stapaskóla. Skólasetning og aðlögun ásamt fullum skóladegi hjá grunnskólanemendum.
Lesa meira
25.08.2020
Hér er mynd af vinnusvæði, bílastæðum og gönguleiðum við Stapaskóla.
Lesa meira
21.08.2020
Ágætu foreldrar/forráðamenn,
Skólasetning Stapaskóla mun fara fram þriðjudaginn 25. ágúst og hefðbundið skólahald hefst að lokinni móttöku nemenda. Að þessu sinni er óskað eftir því að foreldrar komi ekki til skólasetningar með börnum sínum nema hjá 1. bekk.
Lesa meira
05.08.2020
Í fyrsta sinn er nú sumarfrístund í boði fyrir nemendur í 1. og 2. bekk. Skráningu lauk 1. ágúst á mitt.reykjanes.is
Starfsemin hefst mánudaginn 10. ágúst. Starfsemin er frá kl.9.00 og til kl. 15.00 á virkum dögum fram að skólasetningu.
Gjaldið fyrir sumarfrístund er kr.8.400 sem er eingöngu fyrir matinn sem börnin fá. Þau fá morgunmat, heitan hádegismat og síðdegishressingu.
Alexía Ósk forstöðumaður frístundaheimilis Stapaskjóls mun skipuleggja og halda utan um starfið. Með henni koma námsmenn á vegum Reykjanesbæjar. Leiðarljós frístundaheimilanna er að bjóða börnum upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra í gegnum leik og starf.
Tekið er á móti börnunum í bráðabirgðahúsnæði Stapaskóla (þar sem kennsla hefur farið fram sl. ár). Mikilvægt er að börnin séu klædd eftir veðri og með aukaföt með sér.
Hlökkum til að sjá ykkur
Lesa meira
24.06.2020
Kæru foreldrar/forráðamenn
Frístundaheimili Stapaskjól opnar frá 10. ágúst fyrir tilvonandi 1. bekkinga og 2. bekk.
Reykjanesbær hefur ráðið námsmenn til starfa í gegnum sumarátak stjórnvalda í hin ýmsu störf og meðal annars til þess að starfa á Frístundaheimilum. Með þessu gefst okkur tækifæri til þess að opna Frístundaheimilin í þremur skólum, Akurskóla, Háaleitisskóla og Stapaskóla frá 10. til 21. ágúst. Börnin geta því farið í nýja skólann sinn í stað þess að fara aftur á leikskólann eftir sumarfrí.
Starfsemin verður frá kl. 9:00 til 15:00 á virkum dögum á tímabilinu 10. - 21. ágúst. Einungis verður innheimt gjald fyrir matinn sem börnin fá yfir daginn en þau fá morgunmat, heitan hádegismat og síðdegishressingu. Verðið fyrir hvern dag er 840 kr eða 8.400 kr fyrir tímabilið. Einungis verður hægt að skrá barn heila daga eða allt tímabilið.
Starfsemin verður skipulögð í samstarfi við forstöðumann frístundaheimilisins. Leiðarljós frístundaheimilanna er að bjóða börnum upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og félagsfærni þeirra í gegnum leik og starf. Þar er lögð áhersla á frjálsan leik og óformlegt nám barna með virkri þátttöku í frístundastarfi þar sem hver og einn fær stuðning við hæfi. Boðið er upp á viðfangsefni jafnt inni sem úti í styðjandi umhverfi sem hæfir þörfum, þroska og styrkleika þeirra svo að þau fái notið bernsku sinnar.
Skráning fer fram í gegnum MittReykjanes - Umsókn um dvöl í Frístundaheimili 10. - 21. ágúst 2020 (Akur-, Háaleitis- og Stapaskóli). Skráningu þarf að vera lokið fyrir 1. ágúst 2020 svo að við getum tryggt barninu dvöl.
Vakin er athygli á því að skráning fyrir þetta tímabil (10. - 21. ágúst) tengist ekki skráningu fyrir Frístundaheimilið þegar skólastarf hefst. Sækja þarf sérstaklega um það á MittReykjanes.
Lesa meira