Litlu jólin og jólaleyfi

Á föstudaginn 18. desember eru litlu jólin hjá nemendum á grunnskólastigi.

Nemendur í 1. - 6. bekk mæta til kennara kl.11.00 - 12.00.
Nemendur í 7. - 9. bekk mæta til kennara kl.13.00 - 14.00.

Þegar þeim lýkur hefst jólaleyfi hjá 1. - 9. bekk og mæting eftir jólaleyfi er þriðjudaginn 5. janúar.

Jólaleyfi á leikskólastigi hefst 24. desember og mæta nemendur eftir jólaleyfi mánudaginn 4. janúar. Þeir mæta í Stapahöllina, bráðabirgðahúsnæði.

Starfsfólk óskar fjölskyldum gleðilegrar hátíðar og heillaríks nýs árs.
Með þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.

Hátíðarkveðjur
Starfsfólk Stapaskóla