Vísindaveisla Háskólalestar HÍ - laugardaginn 14. maí

Vísindaveisla Háskólalestar HÍ verður haldin í Kviku, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur, laugardaginn 14.maí kl.12-16. Þar býðst fjölskyldumeðlimum á öllum aldri að kynnast undrum vísindanna með gangvirkum og lifandi hætti í gegnum fjölbreytt tæki, tól og smiðjur.
 
Verið hjartanlega velkomin – enginn aðganseyrir!
 
Megin áherslan í starfi Háskólalestarinnar er á að kynna vísindi á lifandi og fjölbreyttan hátt fyrir ungu fólki, styðja við starf grunnskólanna og efla tengsl við landsmenn á öllum aldri. Í áhöfn lestarinnar eru kennarar og nemendur við Háskóla Íslands, sem flestir hverjir eru líka leiðbeinendur í Vísindasmiðju HÍ og Háskóla unga fólksins.
 
Háskólestin hefur heimsótt hátt á fjórða tug áfangastaða um allt land og fengið einstaklega hlýjar móttökur hvert sem komið er. Það er því alltaf mikið tilhlökkunarefni að hefja ferðina ár hvert með fjölbreytta fræðslu í en allt starf lestarinnar er skipulagt í nánu samstarfi við sveitarfélög og skóla hvers áfangastaðar.
 
Það má því með sanni segja að tilhlökkun sé í lofti fyrir fjölbreyttri fræðslu Háskólalestarinnar í frábærum félagsskap ungu kynslóðarinnar.