- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Stapaskóli fékk árið 2024 styrk frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu fyrir verkefnið Vinnustofa gegn fordómum – Tilheyrum við öll? sem ætlað er nemendum á unglingastigi. Markmið verkefnisins er að fræða nemendur um fordóma með sérstakri áherslu á kynþátta- og menningarfordóma og stuðla að aukinni vitund, samkennd og inngildingu í skólasamfélaginu.
Á síðasta skólaári var lögð áhersla á að kortleggja þekkingu nemenda og kennara á unglingastigi af fordómum og upplifun þeirra af þeim. Miriam Petra, sérfræðingur í fjölmenningu og inngildingu, hélt fræðsluerindi fyrir kennara á unglingastigi um fordóma í íslensku samfélagi. Einnig voru útbúin fræðslumyndbönd í samstarfi við Miriam Petru og auglýsingastofuna Undireins.
Á þessu skólaári hafa verið þróuð fjölbreytt verkefni tengd vinnustofunni og hafa þekktir einstaklingar í íslensku samfélagi tekið þátt í verkefninu með því að vera á veggspjöldum sem unnin voru fyrir verkefnið. Þátttaka þeirra hefur vakið mikla athygli og áhuga meðal nemenda. Við erum mjög þakklátar fyrir að hafa fengið þetta frábæra fólk með okkur í baráttuna gegn fordómum. Á þessari önn kom Miriam Petra einnig með fræðslu um fordóma fyrir nemendur í 8.bekk.
Það var mikil ánægja hjá okkur í lok maí þar sem nemendur í 8.bekk tóku þátt í vinnustofunni Tilheyrum við öll? Þau horfðu á fræðslumyndböndin, fóru í leiki sem reyndu á samvinnu, unnu fjölbreytt verkefni og tóku þátt í umræðum sem snúa að kynþátta- og menningarfordómum. Nemendur sýndu verkefninu áhuga, tóku virkan þátt og við lögðum áherslu á að heyra þeirra upplifun af verkefninu og fá endurgjöf. Heimasíða verkefnisins verður aðgengilegt fljótlega og við vonumst til að fleiri skólar muni nýta sér námsefnið sem þar verður að finna.
Hér má sjá nokkrar umsagnir nemenda um verkefnið:
,,Þetta var mjög fræðilegt og skemmtilegt verkefni. Ég lærði um að rasismi getur komið fram á ólíkan hátt. Mér finnst ég geta stígið inn í aðstæður þar sem eru fordómar því mér finnst ég betur vita hvað ég get sagt.’’
,,Mér fannst þetta geggjað verkefni og ég mæli mjög mikið með. Þetta var góð leið til að ræða um rasisma, skilja hvernig hann kemur fram og koma í veg fyrir fordóma.’’
,,Mér finnst allt sem við erum búin að læra mjög skemmtilegt og áhugavert. Mér persónulega finnst að unglingar í dag þurfi að læra um fordóma og hvaða áhrif þeir hafa á fólk. Það var gaman að fara yfir þetta og líka að fara í leikina.’’
Nemendur í samvinnuleikjum
Lært um staðalímyndir með kartöflum
Hér má sjá nokkur plaköt sem hengd hafa verið upp um skólann