Veðurfar - viðvörun 7. febrúar

Enn og aftur er appelsínugul veðurviðvörun. Skólinn er opinn og er öruggt skjól fyrir nemendur en foreldrar eru hvattir til að meta sjálfir stöðuna og fylgja börnum í og úr skóla. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.