- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Miðvikudaginn 9. september (á morgun) verður lokað fyrir heitt vatn í Innri-Njarðvík frá kl. 08:00. Gera má ráð fyrir að lokun vari í 5-7 klst.
Lokun hefur eftirfarandi áhrif á skólastarf Stapaskóla - leikskólastig:
Máltíðir frá Skólamat verða með einfaldara sniði þennan dag. Boðið verður upp á annað en graut og morgunkorn í morgunmat og öll börn fá pastabakka með kjúklingi í hádegismat.
Það gæti orðið kalt í húsnæði leikskólans þennan dag og jafnvel næsta dag á eftir þegar þrýstingur í hitaveitukerfinu er að komast í lag. Gott er að hafa í huga að börnin séu klædd samkvæmt þeim upplýsingum.
Lokun hefur eftirfarandi áhrif á skólastarf Stapaskóla - grunnskólastig:
Íþrótta- og sundkennsla – vegna lokunar sundlaugar fellur skólasund niður og nemendur sem eiga sundtíma því í útiíþróttum.
Hádegisverður – boðið verður upp á pastabakka með kjúklingi ásamt ávaxtabar.
Að öðru leyti verður hefðbundið skólastarf.