Útskriftarhátíð leikskólastigs 2026

Fimmtudaginn 28. maí s.l. útskrifuðum við nemendur á Óskasteini, frábæru elstu börnin okkar. Þessi viðburður markar tímamót í lífi barnanna sem nú kveðja leikskólastigið og hefja nýjan kafla í grunnskóla næsta haust.

Athöfnin fór fram á sal skólans á grunnskólastigi. Nemendur stigu á stokk og glöddu viðstadda með fallegum söng en þau fluttu þrjú lög sem þau höfðu æft af kostgæfni undanfarnar vikur. Bæði Sigurlaug Anna deildarstjóri á elstu deildinni, Óskasteini, og Elísabet Kjartansdóttir aðstoðarskólastjóri Stapaskóla héldu stuttar ræður, nemendur fengu afhent útskriftarskjöl og fallegar sjálfsmyndir sem þau höfðu gert dagana á undan. Að lokum var boðið upp á súkkulaðiköku, djús og kaffi.

Þetta var virkilega gleðileg stund þar sem foreldrar, systkini, ömmur og afar auk kennarar glöddust saman með þessum frábæru útskriftarnemendum með bros á vör og gleði í hjarta.

Við óskum þessum yndislega hópi bjartrar framtíðar og góðs gengis á næsta skólastigi.

 

Það er einnig vert að minnast á bæði fallega og veglega gjöf frá foreldrum barna á Óskasteini í tilefni af útskriftinni. En þau færðu leikskólanum margskonar gagnlegan efnivið og leikföng sem munum koma sér vel fyrir leikskólann og nemendur hans. Má þar nefna rennibraut, vegasalt, plu-plus kubba, kríta, bolta, sippubönd, púsl, spil og margt fleira. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir örlætið og að hugsa svona fallega til okkar á leikskólanum.