Útskrift elstu leikskólabarna

Miðvikudaginn 28. maí var haldið upp á merkisdag í Stapaskóla þegar 23 nemendur útskrifuðust af leikskólastigi við hátíðlega athöfn í fjölnotasal skólans. Þessi viðburður markar tímamót í lífi barnanna sem nú kveðja leikskólastigið og hefja nýjan kafla í grunnskóla næsta haust.

Börnin glöddu viðstadda með fallegum söng og fluttu þrjú lög sem þau höfðu æft af kostgæfni. Gróa Arndal Axelsdóttir skólastjóri flutti hlýja kveðjuræðu og síðan fékk hver og einn nemanda útskriftarskjal ásamt fallegri rós, táknræna gjöf fyrir vöxt og þroska barnanna.

Að lokinni útskriftarathöfn var boðið upp á léttar veitingar þar sem börn, foreldrar og starfsfólk nutu samverunnar. Andrúmsloftið var því bæði hátíðlegt og notalegt.

Starfsfólk Stapaskóla sendir útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra innilegar hamingjuóskir og hlýjar kveðjur með þessum fallegu ljóðlínum:

Allar stundir okkar hér er okkur ljúft að muna. Fyllstu þakkir flytjum þér takk fyrir samveruna.