Útskrift elstu barna á leikskólastigi

Miðvikudagurinn 31. maí var stór dagur hjá elstu börnum leikskólastigs Stapaskóla en þann dag útskrifuðust þau við hátíðlega athöfn í fjölnotasal skólans.

Leikskólinn útskrifar börn af 1. skólastiginu en í haust fara þau á næsta skólastig sem er grunnskólinn.

Nemendurnir voru búin að æfa þrjú lög sem þau sungu á sviði fyrir foreldra sína og starfsfólk. Gróa skólastjóri hélt stutta ræðu og fengu allir nemendur útskriftarskjal ásamt rós frá skólanum.

Eftir athöfnina buðu nemendur foreldrum sína upp á léttar veitingar.

Við óskum útskriftarnemendum okkar og aðstandendum þeirra innilega til hamingju með áfangann.

Allar stundir okkar hér
er okkur ljúft að muna.
Fyllstu þakkir flytjum þér
takk fyrir samveruna.

Útskrift elstu barna á leikskólastigi