Útskrift 10. bekkjar skólaárið 2024-2025

Þriðjudaginn 10. júní er útskrift 10. bekkjar við grunnskólastig Stapaskóla.

Nú í fjórða sinn útskrifum við nemendur úr 10. bekk Stapaskóla. Athöfnin hefst í íþróttasal skólans kl.12.00. Þar verða viðurkenningar veittar fyrir góðan árangur, hrósskjöl lesin upp og vitnisburður afhentur.

Foreldrar og gestir eru hjartanlega velkomnir og í lokin er boðið uppá kaffiveitingar.