Treyjudagurinn 4. september

Föstudaginn 4. september verður Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn á Íslandi til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.

Á Treyjudeginum eru nemendur og starfsfólk hvött til að mæta í sinni uppáhalds íþróttatreyju í skólann og sýna þannig samstöðu með börnum sem glíma við krabbamein. Það skiptir engu máli hvaða liði er haldið með, öll lið eru í sama liðinu þennan dag.

Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna stendur að deginum en sambærilegur dagur hefur verið haldinn í Danmörku, Svíþjóð og Noregi um árabil.

Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn með krabbamein í hverjum mánuði. Með Treyjudeginum getum við sýnt stuðning og samstöðu á einfaldan og sýnilegan hátt.

Við hvetjum því alla til að finna uppáhaldstreyjuna og mæta í henni í skólann föstudaginn 4. september!