Þemadagar og þemahátíð í Stapaskóla – „Vor í bæ“

Dagana 4.–5. júní verða haldnir þemadagar í Stapaskóla þar sem nemendur af Óskasteini og í 1.–10. bekk taka þátt í fjölbreyttri og skapandi vinnu undir yfirskriftinni „Vor í bæ“. Nemendur vinna að fjölbreyttum verkefnum, fara í vettvangsferðir og fræðast um nærumhverfi sitt í gegnum leik og starf.

Að því loknu verður haldin þemahátíð föstudaginn 6. júní, þar sem nemendur fá tækifæri til að njóta samveru og skemmtunar í leik og starfi. Á dagskrá verða ýmsir skemmtilegir leikir, andlitsmálning, opinn fatamarkaður og boðið verður upp á grillaðar pylsur. Þá munu VÆB bræður, í boði foreldrafélags grunnskólastigs, stíga á svið og taka nokkur lög til að kóróna gleðina.

Þemahátíðin er skertur skólardagur fyrir nemendur í 1.–10. bekk. Mæting er kl. 09:00 og skóla lýkur kl. 11:00. Frístundaheimilið opnar að loknum skóladegi fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Foreldrar/forráðamenn eru hvattir til að koma með nemendum á þemahátíðina