- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Stapaskóli hélt vel heppnaða þemadaga síðastliðna viku, þar sem nemendur í 1.-10. bekk og elsta deild leikskólans, Óskasteinn, tóku þátt í fjölbreyttum verkefnum og heimsóknum. Dagarnir fóru fram á miðvikudag og fimmtudag og var svo þemahátíð á föstudag. Dagarnir voru skipulagðir með það að markmiði að efla tengsl nemenda við nærsamfélagið og sögu bæjarins.
Nemendur í 1. og 2. bekk, ásamt börnum frá Óskasteini, heimsóttu Dalshverfi og nærumhverfi skólans. Þar fengu þau leiðsögn um sögu hverfisins, tóku þátt í náttúruskoðun og skoðuðu ný hús og nýja leikskólalóð við Drekadal.
Nemendur í 3. og 4. bekk heimsóttu DUUS hús og Skessuhelli, þar sem þau lásu sögur á staðnum, kynntu sér sögu bæjarins og skoðuðu gamlar myndir.
Eldri nemendur í 5. og 6. bekk fóru í heimsóknir í aðra skóla og á íþróttasvæði og unnu svo í stöðvavinnu útfrá því.
Á unglingastigi störfuðu nemendur í ýmsum klúbbum. Hópur nemenda bjuggu til ratleik aðrir voru í fatamarkaðsnefnd og settu upp markað og skemmtinefnd sá um að undirbúa þemahátíð með tónlist og ýmsum skemmtilegum stöðvum.
Þemadögunum var svo slúttað með þemahátíð þar sem foreldrum var boðið í skólan, krakkar fengu andlitsmálningu, þrautir og svo voru grillaðar pylsur að lokum var hátíðin svo toppuð þar sem strákarnir í VÆB stigu á stokk við mikinn fögnuð nemenda skólans.
Þemadagarnir þóttu takast einstaklega vel og gáfu nemendum tækifæri til að læra og upplifa á annan hátt en í hefðbundnu skólastarfi.