Sumarlokun

Skrifstofa Stapaskóla lokar vegna sumarleyfa 2. júlí til 6. ágúst. Leikskólastig Stapaskóla fer í sumarleyfi miðvikudaginn 3. júlí og mætir aftur til starfa miðvikudaginn 7. ágúst kl.11.00.


Starfsfólk Stapaskóla sendir nemendum og fjölskyldum sólakveðjur með von um yndislegar samverustundir í sumarleyfinu.

Sumarkveðja
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.
Nú fossar, lækir, unnir, ár
sér una við þitt gyllta hár.
Nú fellur heitur haddur þinn
um hvíta jökulkinn.

Þú klæðir allt í gull og glans,
þú glæðir allar vonir manns,
og hvar sem tárin kvika' á kinn
þau kyssir geislinn þinn.
Þú fyllir dalinn fuglasöng,
nú finnast ekki dægrin löng,
og heim í sveitir sendirðu' æ
úr suðri hlýjan blæ.

Þú fróvgar, gleður, fæðir allt
um fjöll og dali' og klæðir allt,
og gangirðu' undir gerist kalt,
þá grætur þig líka allt.
Ó, blessuð vertu sumarsól,
er sveipar gulli dal og hól
og gyllir fjöllin himinhá
og heiðarvötnin blá.

Ingi T. Lárusson / Páll Ólafsson