Sumarleyfi - opnunartími skrifstofu

Skrifstofa Stapaskóla er lokuð frá 27. júní til og með 8. ágúst. 

Leikskólastigið opnar miðvikudaginn 9. ágúst kl. 11.00.

Sumarfrístund fyrir nemendur í 1. og 2. bekk opnar miðvikudaginn 9. ágúst kl. 9.00.

Starfsmenn Stapaskóla óska nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakka fyrir samstarfið á skólaárinu. Hlökkum til að sjá alla í haust.