Sumarhátíð leikskólastigs 24. júní

Í gær héldu leikskólabörnin okkar í Stapaskóla upp á sumarhátíðina sína.

Krakkarnir buðu aðstandendum í heimsókn á útisvæði þar sem þau sungu nokkur lög, buðu upp á skúffuköku og léku sér á frábæra útisvæði okkar.

Dagurinn var einstaklega vel heppnaður og þökkum við starfsfólk þeim sem mættu innilega fyrir komuna og óskum nemendum, foreldrum og öðrum velunnurum Stapaskóla gleðilegs sumars.