Sumarfrí á skrifstofu og leikskólastigi

Nú þegar sumarfrí grunnskólanemenda er hafið viljum við upplýsa um sumarlokun og opnunartíma skrifstofu og leikskólastigs Stapaskóla.

Skrifstofa skólans fer í sumarfrí eftir kl. 12:00 föstudaginn 19. júní og opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst kl. 10:00.

Á leikskólastigi verður opið til kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júní. Börn og starfsfólk mæta aftur miðvikudaginn 5. ágúst kl. 11:00.

Sumarfrístund fyrir verðandi 1. bekkinga

Sumarfrístund fyrir þau börn sem þar eru skráð og hefja nám í 1. bekk í haust hefst 11. ágúst. Nánari upplýsingar verða sendar út 6. ágúst.

Vistunartími er frá kl. 9:00 til 15:00. Börn þurfa að koma með morgunnesti en hádegisverður og síðdegishressing verða í boði í skólanum.

Skráningar

 

Starfsfólk Stapaskóla óskar öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar fyrir gott samstarf á liðnu skólaári. Við hlökkum til að sjá ykkur aftur að loknu sumarfríi.