Stjörnu-Sævar heimsótti Stapaskóla

Þann 29. maí fékk Stapaskóli góða heimsókn þegar Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, kom og hélt fræðandi og skemmtilega kynningu fyrir nemendur skólans.

Heimsóknin var hluti af fræðsluverkefni á vegum Reykjanes jarðvangs og GeoCamp Iceland sem miðar að því að fræða grunnskólanemendur um þann einstaka atburð sem fram undan er, almyrkva á sólu sem verður sjáanlegur frá Reykjanesskaga þann 12. ágúst 2026.

Í erindi sínu fræddi Stjörnu-Sævar nemendur um sólmyrkva og hvers vegna almyrkvi er svo sérstakur viðburður. Hann fjallaði einnig um mikilvægi þess að fylgjast með myrkvanum á öruggan hátt og vakti áhuga nemenda á stjörnufræði, vísindum og náttúrunni.

Almyrkvi á sólu er afar sjaldgæfur viðburður og verður þetta í fyrsta sinn síðan árið 1330 sem slíkur myrkvi sést frá Reykjanesskaga. Næsta tækifæri verður ekki fyrr en árið 2245, sem gerir komandi myrkva að einstakri upplifun fyrir nemendur og alla landsmenn.

Við þökkum Stjörnu-Sævari kærlega fyrir heimsóknina og fróðlega kynningu sem vakti mikla athygli og áhuga meðal nemenda.