Stapaskóli orðinn UNESCO-skóli!

Í dag var stór dagur í Stapaskóla þegar nemendur og starfsfólk komu saman til að fagna því að skólinn er orðinn UNESCO-skóli.

Með því verður Stapaskóli hluti af alþjóðlegu samstarfsneti skóla sem leggja áherslu á frið, mannréttindi, sjálfbæra þróun og alþjóðavitund.

Að vera UNESCO-skóli felur meðal annars í sér að vinna að því að nemendur læri að bera virðingu fyrir fjölbreytileika, hugsa vel um umhverfi sitt og átti sig á því að þeir geti sjálfir haft áhrif á samfélagið og heiminn í kringum sig.

Í tilefni dagsins komu nemendur í 1.–10. bekk saman til hátíðarstundar þar sem rætt var um hvað það þýðir að vera UNESCO-skóli. Nemendur úr nemendaráði kynntu einnig nýjan hróskassa sem ætlað er að efla jákvæð samskipti og góðan skólabrag. Nemendur eru hvattir til að skrifa hrós til samnemenda sinna og setja í kassann. Verkefnið er skemmtilegt dæmi um hvernig nemendur geta sjálfir lagt sitt af mörkum til að skapa enn betra skólasamfélag.

Söngurinn skipaði einnig stóran sess í hátíðarstundinni enda fátt sem sameinar okkur betur en að syngja saman. Sungin voru þrjú lög undir stjórn Guðlaugs Ómars tónmenntakennara.

Við erum stolt af þessum áfanga og lítum ekki á UNESCO-viðurkenninguna sem endapunkt heldur hvatningu til að halda áfram að þróa skólastarf þar sem samvinna, virðing og ábyrgð eru í fyrirrúmi.

Til hamingju með daginn, Stapaskóli!