- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar voru afhent við hátíðlega athöfn í DUUS húsum í gær, miðvikudaginn 4. júní. Í ár bárust 12 tilnefningar frá leik- og grunnskólum Reykjanesbæjar. Stapaskóli hlaut Hvatningarverðlaunin í ár fyrir verkefnið Heillaspor – verkefni til að efla vellíðan og tilfinningalegt öryggi í skólastarfi. Að auki hlutu Heiðarskóli og Háaleitisskóli sérstaka viðurkenningu.
Innleiðingarteymi skólans tók á móti viðurkenningunni og er mjög þakklátt og stolt yfir þessum heiðri.
Verkefnið Heillaspor byggir á heildrænni nálgun til að styðja við farsæla þátttöku barna í skóla- og frístundastarfi. Á ferðalagi skólans hefur allt starfsfólk hefur fengið reglulega fræðslu og tekið þátt í sameiginlegri vinnu við að samhæfa viðmið og viðbrögð við hegðun barna, ásamt því að auka við þekkingu á hvað liggur að baki hegðun.
Í ferðalagi sem þessu er mikilvægt að allt starfsfólk gangi í takt og bregðist við á sama hátt. Með þessari vinnu erum við að efla starfsfólk í því að beita jákvæðri styrkingu og gefa þeim verkfæri til að vinna með óæskilega hegðun.
Við teljum að með Heillasporum munum við geta komið betur til móts við þarfir nemenda, skilið betur hvað fest í tilfinningalegu ójafnvægi og verkfæri til að bregðast við á jákvæðan hátt með vellíðan þeirra að leiðarljósi.
Við erum afar þakklát fyrir þessa viðurkenningu. Hún er mikil hvatning til áframhaldandi vinnu og staðfesting á því að verkefnið skiptir máli.