Skólastarf í leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum

Að öllu óbreyttu verður skólastarf í öllum leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Vogum á morgun mánudaginn 12. febrúar. Þetta á einnig við um starfsemi frístundaheimila. Þess má geta að skipulagt íþróttastarf hjá börnum og ungmennum fellur niður.

Vel gengur að koma og halda hita á skólabyggingum en starfsfólk sveitarfélaganna og aðgerðastjórn Suðurnesja hafa nýtt helgina til að koma fyrir hitablásurum í allar byggingar. Það getur þó verið gólfkalt og tilvalið að vera í inniskóm eða hlýjum sokkum.

Staðan verður tekin reglulega og upplýsingar verða sendar frá skólastjórnendum til foreldra/forráðamanna ef gera þarf breytingar og aðlaga skólastarf að þeim.

Við tökumst saman á við þessi ólíku verkefni af æðruleysi og kærleika.