Skólaslit og útskrift 10. bekkjar í Stapaskóla

Í gær, 10. júní, fóru fram skólaslit Stapaskóla og útskrift 10. bekkjar við hátíðlegar athafnir þar sem nemendur, foreldrar, forráðamenn og starfsfólk komu saman til að fagna lokum farsæls skólaárs.

Í ávarpi skólastjóra var meðal annars komið inn á að þótt skólamál séu mikið til umræðu og oft mæld í tölum, prófum og árangri sé mikilvægt að gleyma ekki því sem skiptir ekki síður máli. Skóli sé fyrst og fremst samfélag fólks þar sem vinátta, samvinna, umhyggja og dagleg samskipti móti börn og ungmenni ekki síður en kennslan sjálf.

Farið var yfir helstu viðburði skólaársins og rifjað upp meðal annars innleiðingu Matsferils, öflugt alþjóðlegt samstarf í gegnum Erasmus+, fyrstu sameiginlegu árshátíð grunnskólans og Menningarmótið sem lauk skólaárinu með glæsibrag. Jafnframt var lögð áhersla á að það mikilvægasta sem nemendur taki með sér úr skólagöngunni sé ekki aðeins þekking úr bókum heldur einnig reynsla, samskipti og þau gildi sem gera þau að ábyrgum og sjálfstæðum einstaklingum.

Við athöfnina voru einnig færðar sérstakar þakkir til foreldrafélags Stapaskóla fyrir afar gott samstarf á skólaárinu og mikilvægan stuðning við skólasamfélagið.

Að venju var einnig kvatt samstarfsfólk sem heldur á nýjar slóðir. Í ár voru það Ásdís Björk, Birgitta Ýr, Brynja Stefáns, Dagný Sjöfn, Emily, Freysteinn Ingi, Fríða Hrönn, Guðjón Snorri, Guðný Pála, Hildur Helga, Hólmfríður Rún, Hrönn Guðmunds, Jón Aðalgeir, Patrekur, Sandra Sif, Sunneva Fríða og Þórunn Helga. Þeim eru færðar innilegar þakkir fyrir framlag sitt til Stapaskóla og óskað velfarnaðar í þeim verkefnum sem fram undan eru.

Við útskrift 10. bekkjar fluttu Salma Mariam Awal og Íris Brynja Arnarsdóttir skemmtilegt og hlýlegt ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda þar sem þær litu yfir farinn veg og þökkuðu fyrir samveruna og minningarnar sem skapast hafa í gegnum grunnskólagönguna.

Hrútur og Ninna, umsjónarkennarar árgangsins, fluttu jafnframt persónulega tölu þar sem þau rifjuðu upp vegferð hópsins, sameiginlega upplifun og þann þroska sem nemendur hafa sýnt í gegnum árin. Í framhaldinu fengu útskriftarnemar afhentan vitnisburð sinn ásamt persónulegum hrósskjölum.

Viðurkenningar voru veittar fyrir framúrskarandi árangur og framfarir á ýmsum sviðum skólastarfsins. Embla Dís Sighvatsdóttir hlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í bóklegum greinum, náttúrugreinum, skólaíþróttum og sundi. Finnbjörn Orri Hauksson hlaut viðurkenningu fyrir skapandi og gagnrýna hugsun, Helgi Rafn Arnarsson fyrir miklar framfarir í námi, Layan Naim Naim fyrir þrautseigju í námi, Salma Mariam Awal fyrir skapandi skrif og Jökull Smári Hreiðarsson fyrir framúrskarandi árangur í skólaíþróttum og sundi.

Við óskum öllum útskriftarnemendum innilega til hamingju með áfangann og þökkum nemendum, foreldrum, forráðamönnum og starfsfólki fyrir farsælt samstarf á skólaárinu 2025–2026.

Gleðilegt sumar!