Skólahreysti

Í dag, miðvikudaginn 27. apríl, klukkan 17:00 keppir lið Stapaskóla í Skólahreysti.

Lið skólans er skipað:

  • Upphífur og dýfur: Gunnar (10.bekk)
  • Armbeygjur og hanga: Una Rós (9.bekk)
  • Hraðaþraut: Vala (9.bekk) og Leonard (9.bekk)
  • Varamenn: Þórdís (9.bekk), Íris (9.bekk) og Jón Hjörtur (10.bekk)

Keppnin fer fram í TM höllinni í Garðabæ og verður hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á RÚV. Rúta með stuðningsmönnum af unglingastigi skólans fer frá skólanum kl. 15:45 (ath. nemendur hafa þegar skráð sig í rútuna).

ÁFRAM STAPASKÓLI…!!!