Skóladagatal grunnskólastigs skólaárið 2026 - 2027

Skóladagatal Stapaskóla fyrir skólaárið 2026 - 2027 hefur nú verið birt. Dagatalið hefur verið samþykkt af starfsfólki skólans, Skólaráði og Menntaráði Reykjanesbæjar.

Starfstími nemenda í grunnskóla er á hverju skólaári að lágmarki níu mánuðir og eiga skóladagar nemenda að vera eigi færri en 180. Fjöldi skóladaga nemenda er lögbundinn. Skóladagar nemenda eru á tímabilinu 20. ágúst til 10. júní. Skipting milli kennsludaga og annarra skóladaga nemenda er á ábyrgð skólastjóra með samþykki frá starfsfólki í Stapaskóla, skólaráði Stapaskóla og Menntaráði Reykjanesbæjar.

Hérna er útskýring á uppbrotsdögum, skertum skóladögum, starfsdögum,haust- og vetrarleyfi:
Uppbrotsdagar eru einstaka skóladagar þar sem stundatöflu nemenda er breytt verulega en upphaf og lok skóladags er því næst þau sömu. Uppbrotsdagar eru nýttir til óhefðbundins skólastarfs. Uppbrotsdagar geta mest orðið tíu dagar á skólaárinu. Í Stapaskóla verða fimm uppbrotsdagar á skólaárinu 2026-2027 og eru þeir tilgreindir á skóladagatalinu. Frístundaheimilið í Stapaskóla er opið á uppbrotsdögum.
- Uppbrotsdagar á skólaárinu eru: Setning Ljósanætur (3. september), Jólahátíð (17. desember) og Þemadagar (25. - 27. nóvember og 4., 7. og 8. júní).

Skertir skóladagar nemenda teljast ekki til uppbrotsdaga og geta verið tíu talsins. Með skertum skóladögum m.a. átt við skólasetningar- og skólaslitadaga, samtalsdaga og annað sem skólastjóri ákveður í hverjum skóla. Í Stapaskóla verða tíu skertir skóladagar á skólaárinu 2026-2027 og eru þeir tilgreindir með grænum lit á skóladagatalinu.
- Frístundaheimilið í Stapaskóla er opið á eftirfarandi skertum skóladögum: Ráðstefna (10. september), samskiptadaga (1. október og 26. janúar), þemahátíð (9. júní), öskudag (10. febrúar) og íþróttadag (27. maí).
- Frístundaheimilið í Stapaskóla er lokað á eftirfarandi skertum skóladögum: Skólasetningu (25. ágúst), litlu jólum (18. desember), árshátíð (19. mars) og skólaslitum (10. júní).

Vetrarleyfi eru dagana 23. og 26. október og 11. og 12. febrúar. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilið lokað. Haust- og vetrarleyfisdagar eru tilgreindir með appelsínugulum lit á skóladagatalinu.

Starfsdagar eru fimm á starfstíma nemenda. Engin kennsla er þessa daga og frístundaheimilið lokað. Starfsdagar eru tilgreindir með gulum lit á skóladagatalinu.
- Starfsdagar á skólaárinu eru: 11. september, 23. nóvember, 11. janúar, 23. apríl og 12. maí.

Við gerð skóladagatala er reynt að dreifa uppbrotsdögum, skertum nemendadögum, haust- og vetrarleyfisdögum og starfsdögum á vikudagana yfir skólaárið eins og kostur er.