- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Sjálfsmatsskýrsla Stapaskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er nú aðgengileg á heimasíðu skólans.
Sjálfsmat er mikilvægur þáttur í að efla gæði skólastarfs og styðja við markvissa þróun og umbætur. Í skýrslunni eru dregnar saman helstu niðurstöður innra mats skólans sem byggja á fjölbreyttum gögnum frá nemendum, forráðamönnum og starfsfólki.
Í skýrslunni er meðal annars fjallað um helstu viðfangsefni mats á skólaárinu, niðurstöður úr Skólapúlsinum, starfsmannakönnun Reykjanesbæjar og önnur gögn sem nýtast við að meta starfsemi skólans. Jafnframt eru sett fram áhersluatriði til áframhaldandi þróunar skólastarfsins.
Sjálfsmatið er unnið í samræmi við stefnu Stapaskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar og hefur það að markmiði að greina styrkleika skólans, benda á tækifæri til umbóta og styðja við faglegt starf í þágu nemenda.
Sjálfsmatsskýrsluna má finna með því að smella hér.