- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Fimmtudaginn 1. október verður samskiptadagur í Stapaskóla. Þá mæta nemendur ásamt foreldrum sínum í viðtal hjá umsjónarkennara þar sem rætt verður um líðan, nám og framvindu náms.
Þennan dag er ekki hefðbundinn skóladagur og nemendur mæta því aðeins í bókað viðtal með foreldrum sínum.
Bókanir í viðtöl fara fram í Námfús, námsumsjónarkerfi skólans. Opnað verður fyrir bókanir fimmtudaginn 24. september og eru foreldrar beðnir um að ganga frá bókun í síðasta lagi miðvikudaginn 30. september.
Foreldrar sem hafa ekki enn fengið aðgang að Námfús eða lenda í vandræðum með bókun eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skólann.
Frístundaheimilið Stapaskjól verður opið frá kl. 08:30 fyrir þau börn sem þar eru skráð.
Við hlökkum til að hitta nemendur og foreldra þeirra á samskiptadeginum og eiga gott samtal um líðan, nám og framvindu. Góð samskipti og samstarf heimilis og skóla eru mikilvægur þáttur í farsælu skólastarfi.