Röskun á skólahaldi

Ágætu foreldrar/forráðamenn,

Vegna boðaðs verkfalls aðildarfélaga BSRB mun stór hópur félagsmanna BSRB leggja niður störf mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars nk. Röskun á skólastarfi verður vegna þessa, þar sem stór hluti af starfsmönnum skóla aðrir en kennarar og stjórnendur leggja niður störf.

Til að gæta fyllsta öryggis verður skólastarfi við Stapaskóla háttað þannig þessa daga ef til verkfalls kemur:

Mánudagurinn

1.– 3. bekkur mætir í skólann frá kl.10.10 – 13.20

4.-5. bekkur mætir í skólann frá kl.8.30 – 9.50

Þriðjudagurinn

1.-3. bekkur mætir í skólann frá kl. 10.10 – 11.30

4.-5. bekkur mætir í skólann frá kl.8.30 – 9.50

Hádegismatur verður framreiddur á mánudeginum fyrir 1.-3. bekk en á þriðjudeginum verður enginn hádegismatur. Frístundaheimilið verður lokað báða daga. Íþróttir og sund falla niður. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að virða tímasetningar og koma í skólann og fara heim á tilsettum tíma eins og tilgreint er hér að ofan.

Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með fréttum sunnudaginn 8. mars til að geta brugðist við á mánudagsmorgun ef til verkfalls kemur.

Við viljum vekja athygli á því að aðstæður eru misjafnar á milli skóla og eru allir skólar að gera sitt besta í því að þjónusta börnin á sem öruggastan hátt.

Dear parents

Due to a planned strike on behalf of BSRB, a large group of our staff will not attend work on Monday March 9th and Tuesday March 10th if a settlement will not be reached by then.

For that reason schooling in Stapaskóli will be as fallowing for those days:

Monday:

4th – 5th grades will attend from 8.30 - 9.50

1st – 3rd grades will attend from 10.10 – 13.20

Tuesday:

4th – 5th grades will attend from 8.30 – 9.50

1st – 3rd grades will attend from 10.10 – 11.30

Lunch will be served for grades 1st – 3rd on Monday but on Tuesday there is no lunch served.

The gym and pool and after school program will be closed.

All students will be sent home at the end of their school day, unless they are picked up on time. We recommend that parents fallow news on Sunday March 8th for more information on the strike.

Note that circumstances differ in Reykjanesbær schools so schedules might not be the same for all students in Reykjanesbæ.