Opnað fyrir umsóknir í vetrarfrístund

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í frístundaheimili grunnskólanna fyrir 1. – 4. bekk skólaárið 2025 – 2026. Sótt er um í gegnum www.mittreykjanes.is, þar er hlekkur í umsóknarkerfi sem heitir Vala frístund.

Inn í Völu geta foreldrar séð allt sem tengist umsókninni.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Reykjanesbæjar.