- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Elísabet Kjartansdóttir hefur verið ráðin í starf aðstoðarskólastjóra á leikskólastigi við Stapaskóla og tekur til starfa 1. mars nk.
Elísabet hefur starfað við Stapaskóla frá upphafi, fyrst sem kennari og síðar sem deildarstjóri yngra stigs. Í störfum sínum hefur hún sýnt fagmennsku, skýra sýn á skólastarf og trausta forystu í samstarfi og daglegri framkvæmd. Hún þekkir vel starfsemi skólans og hefur átt mikilvægan þátt í uppbyggingu og þróun hans frá stofnun.
Elísabet býr jafnframt yfir víðtækri reynslu úr skólastarfi utan Stapaskóla. Hún starfaði áður við Akurskóla og þar á undan við leik- og grunnskóla í Skagafirði. Sú reynsla styrkir hana í nýju hlutverki og mun nýtast vel í áframhaldandi þróun leikskólastigsins.
Við óskum Elísabetu til hamingju með ráðninguna og velfarnaðar í nýju starfi.