- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Nemendaráð Stapaskóla stóð fyrir snúðasölu fyrir nemendur skólans á dögunum og tóku nemendur og starfsfólk einstaklega vel í framtakið. Salan gekk frábærlega og söfnuðust alls 100.000 krónur sem renna til góðs málefnis.
Upphaflega var gert ráð fyrir að ágóðinn rynni til Krabbameinsfélagsins, en á meðan á söfnuninni stóð hófst sérstakt átak á Suðurnesjum til að safna fyrir nýju brjóstaskimunartæki sem staðsett verður á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS).
Nemendaráðinu þótti þetta einstaklega falleg leið til að styðja við baráttuna gegn krabbameini og um leið leggja sitt af mörkum til verkefnis sem mun nýtast fólki í nærsamfélaginu okkar. Ákveðið var því að láta ágóðann af snúðasölunni renna til söfnunarinnar fyrir nýja brjóstaskimunartækið í samstarfi við Krabbameinsfélag Suðurnesja.
Við í Stapaskóla erum afar stolt af frumkvæði nemendaráðsins, samhugnum og vilja þeirra til að láta gott af sér leiða.
Kærar þakkir til allra sem tóku þátt í snúðasölunni og lögðu þessu góða málefni lið. Saman getum við haft jákvæð áhrif! ❤️