Málþing í Hljómahöll um snjallsímanotkun í grunnskólum

Lýðheilsu- og Menntaráð Reykjanesbæjar munu halda málþing í Hljómahöll þann 27. september nk. undir yfirskriftinni „Snjallsímanotkun og samfélag ungmenna í grunnskólum Reykjanesbæjar“. Helsta markmið með málþinginu er að ræða opinskátt um snjallsímanotkun og samfélagsmiðla með það í huga að stuðla að bættri líðan barna og ungmenna. Með þessu samtali getum við sem samfélag vonandi fundið farsæla lausn á því hvernig best er að haga umgengni við snjallsíma með hag barnanna okkar í forgrunni.

Málþingið er milli kl. 14-17 og hefst með fyrirlestrum um málefnið en endar með verkefnavinnu gesta.

Fyrirlesarar eru eftirfarandi aðilar:

Bergþóra Þórhallsdóttir, verkefnastjóri í upplýsingatækni hjá Kópavogsbæ

Daníel Örn Gunnarsson, framhaldsskólanemi

Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar

Gróa Axelsdóttir, skólastjóri Stapaskóla

Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands

Skúli Bragi Geirdal, verkefnastjóri hjá Fjölmiðlanefnd

 

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.