- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Nemendur í 8. bekk Stapaskóla tóku þátt í verkefninu Málæði þar sem unnið var með íslenska tungu á skapandi hátt í gegnum tónlist. Í sérstakri verkefnalotu fengu allir nemendur tækifæri til að semja texta, skapa tónlist og vinna saman að hugmyndum. Að verkefnalotunni lokinni voru lög nemenda send inn til Málæðis.
Lagið Allt í gang, sem Heiða Lind, Tinna Rut, Elsa Lind, Anna Lísa og María Dís sömdu, varð eitt þriggja laga sem hlaut náð fyrir augum valnefndar. Í framhaldinu komu fulltrúar Málæðis ásamt tónlistarkonunum Sölku Sól og Röggu Hólm í heimsókn í Stapaskóla. Þar var unnið áfram að laginu með áhugasömum nemendum úr bekknum.
Í heimsókninni fengu nemendur innsýn í hvernig lag þróast og verður til, allt frá textagerð og tónlistarsköpun til samstarfs við tónlistarfólk. Allur bekkurinn tók þátt í hugmyndavinnu og gerð tónlistarmyndbands við lagið.
Málæði er verkefni sem hvetur ungmenni til að leika sér með íslenskuna, nota sköpunargáfuna og tjá sig í gegnum tónlist. Þátttakan var skemmtileg reynsla fyrir nemendur sem fengu að sjá eigin hugmyndir þróast í fullbúið tónlistarverk.
Þátturinn Málæði, þar sem fylgst er með verkefninu og sköpunarferli nemenda, verður sýndur á RÚV sunnudaginn 15. nóvember. Þar verður einnig tónlistarmyndbandið sem nemendur unnu að fumsýnt.
Til hamingju krakkar með frábæran árangur og vinnu!



