Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjanesbæ fór fram í Hljómahöll þann 10. mars 2026 við hátíðlega athöfn. Þar komu saman fulltrúar grunnskólanna í bænum sem allir höfðu lagt mikla vinnu í undirbúning sinn.

Stóra upplestrarkeppnin er árlegur viðburður sem hefur það að markmiði að efla áhuga nemenda á móðurmálinu og vekja athygli á mikilvægi vandaðs upplestrar og skýrs framburðar. Keppnin er ætluð nemendum sem eru í 7. bekk og hefur um árabil verið einn af hápunktum skólaársins.

Stapaskóli átti tvo frábæra fulltrúa í keppninni, þær Heiðu Lind Hermansdóttir og Maríu Dís Jónsdóttir, sem stóðu sig með mikilli prýði. Þær sýndu góða færni í upplestri og voru skólanum sínum til fyrirmyndar.

Stapaskóli átti einnig tvo flotta fulltrúa sem komu fram á hátíðinni. Það voru þær Ólafía Arndís Björnsdóttir sem spilaði á klarinett og Guðrún Heiða Jónsdóttir sem spilaði á píanó. Þær settu skemmtilegan og hátíðlegan svip á athöfnina með fallegum tónlistarflutningi.

Við í Stapskóla erum afar stolt af fulltrúum okkar og óskum þeim öllum innilega til hamingju með virkilega flotta frammistöðu.