Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hljómahöll í gær 9. mars. Þar komu saman keppendur úr 7. bekk frá öllum grunnskólum Reykjanesbæjar og kepptu fyrir hönd síns skóla. Markmið keppninnar er að vekja athygli og áhuga nemenda á vönduðum upplestri og framburði. Keppnin er ávallt sett á Degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember og þá byrja nemendur að æfa upplestur á fjölbreyttum texta.

Fyrir hönd Stapaskóla tóku þátt Íris Brynja Arnarsdóttir og Dagbjört Dóra Kristmannsdóttir, varamaður þeirra var Embla Dís Sighvatsdóttir. Þær stóðu sig virkilega vel og sýndu hversu mikið þær hafa lagt sig fram síðustu vikur og mánuði.

Íris Brynja endaði í 3. sæti, sem er frábær árangur þar sem keppnin var einstaklega jöfn og spennandi.

Lesarar stóðu sig allir með mikilli prýði, það var því mjög erfitt val fyrir dómara að gera upp á milli þeirra.

Stapaskóli óskar Írisi Brynju innilega til hamingju með frábæran árangur sem og Dagbjörtu Dóru fyrir frábæran flutning.