List fyrir alla

Á fimmtudaginn fengu nemendur í 1. – 4. bekk heimsókn frá listahópnum Dúó Stemma sem er hluti af List fyrir alla.

Hlutverk List fyrir alla er að velja og miðla listviðburðum um allt land og jafna þannig aðgengi barna á grunnskólaaldri að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum. Að þessu sinni eru það listafólkið Herdís Anna og Steef sem sem sýna hljóðsöguna Heyrðu Villuhrafninn mig, sem segir frá Fíu frænku sem er á ferðalagi um Ísland. Hún lendir í ýmsum ævintýrum með vini sínum honum Dúdda. Dvergurinn Bokki, Villuhrafninn, Hrappur rappari og leiðindaskjóðan hún Bárðarbunga koma m.a. við sögu. Þetta er tónleikahús með fullt af áhugaverðum og skemmtilegum hljóðum, íslenskum þulum og lögum. Boðskapur sögunnar er sá að allir eiga sína eigin rödd og allir hafa sitt að segja.

Við þökkum Dúó Stemmu fyrir frábæra skemmtun.