Leikskólastig fær bókagjöf

Í dag barst leikskólastigi vegleg bókagjöf frá útgáfufélaginu Stórir draumar, Íslandsbanka, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins og Toyota á Íslandi. Gjöfin innihélt sex barnabækur úr bókaflokknum um Litla fólkið og stóru draumana. Með gjöfinni fylgja kveðjur til allra barna og ungmenna á Íslandi, með hvatningu til þess að auka lestur á íslensku.

Bækur þessar hafa allar að geyma sögur sem flytja boðskap af einstaklingum sem látið hafa drauma sína rætast og haft um leið jákvæð áhrif á fólk víða um heim. Persónurnar sem þarna er fjallað um koma úr ólíkum áttum, lista og menningar, vísinda og menntasamfélags. Lestur bókanna og umræða um þær eru til þess fallnar að vekja börn til umhugsunar um mikilvæg málefni.

Við þökkum kærlega fyrir þessa frábæru bókagjöf.