Jarðhræringar, v. almannavarnarástands.

Ágætu foreldrar

Nú er heitavatnslögnin til Reykjanesbæjar farin undir hraun. Við erum að fylgjast með, búin að loka öllum gluggum og hiti er enn góður. Við munum því klára skóladaginn á grunnskólastigi. Við eigum von á aðgerðaráætlun frá neyðarstjórn Reykjanesbæjar og sendum ykkur um leið og við fáum frekari upplýsingar.

Við biðjum ykkur að fylgjast með tölvupósti og heimasíðu skólans.