Hátíðarstund á sal - útskrift árgangs 2016

Myndalegur hópur nemenda útskrifaðist af leikskólastigi Stapaskóla miðvikudaginn 25. maí. Við athöfnina talaði Gróa skólastjóri til barnanna og börnin sungu nokkur lög sem þau hafa verið að æfa.   Við útskriftina fékk hvert barn afhent tré til að gróðursetja heima og útskriftarskjal. Að lokum var boðið upp á veitingar.

Við óskum börnunum til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni og um leið fjölskyldum þeirra gott samstarf og ánægjuleg kynni.