Frístundaheimilið opnar 10. ágúst fyrir 1. og 2. bekk

Kæru foreldrar/forráðamenn

Frístundaheimili Stapaskjól opnar frá 10. ágúst fyrir tilvonandi 1. bekkinga og 2. bekk.

Reykjanesbær hefur ráðið námsmenn til starfa í gegnum sumarátak stjórnvalda í hin ýmsu störf og meðal annars til þess að starfa á Frístundaheimilum. Með þessu gefst okkur tækifæri til þess að opna Frístundaheimilin í þremur skólum, Akurskóla, Háaleitisskóla og Stapaskóla frá 10. til 21. ágúst. Börnin geta því farið í nýja skólann sinn í stað þess að fara aftur á leikskólann eftir sumarfrí.

Starfsemin verður frá kl. 9:00 til 15:00 á virkum dögum á tímabilinu 10. - 21. ágúst. Einungis verður innheimt gjald fyrir matinn sem börnin fá yfir daginn en þau fá morgunmat, heitan hádegismat og síðdegishressingu. Verðið fyrir hvern dag er 840 kr eða 8.400 kr fyrir tímabilið. Einungis verður hægt að skrá barn heila daga eða allt tímabilið.

Starfsemin verður skipulögð í samstarfi við forstöðumann frístundaheimilisins. Leiðarljós frístundaheimilanna er að bjóða börnum upp á þátttöku í fjölbreyttu frístunda- og tómstundastarfi án aðgreiningar með það að markmiði að efla sjálfstraust og  félagsfærni þeirra í gegnum leik og starf. Þar er lögð áhersla á frjálsan leik og óformlegt nám barna með virkri þátttöku í frístundastarfi þar sem hver og einn fær stuðning við hæfi. Boðið er upp á viðfangsefni jafnt inni sem úti í styðjandi umhverfi sem hæfir þörfum, þroska og styrkleika þeirra svo að þau fái notið bernsku sinnar.

Skráning fer fram í gegnum MittReykjanes - Umsókn um dvöl í Frístundaheimili 10.-21. ágúst 2020 (Akur-, Háaleitis- og Stapaskóli). Skráningu þarf að vera lokið fyrir 1. ágúst 2020 svo að við getum tryggt barninu dvöl.

Vakin er athygli á því að skráning fyrir þetta tímabil (10. - 21. ágúst) tengist ekki skráningu fyrir Frístundaheimilið þegar skólastarf hefst. Sækja þarf sérstaklega um það á MittReykjanes.