- Skólinn
- Nám & kennsla
- Stoðþjónusta
- Frístundaheimilið
- Leikskólastig
- Foreldrar
- Hagnýtt
- Farsæld barna
Fræðsla fyrir foreldra/forráðamenn í boði foreldrafélagsins í Stapaskóla þann 22. apríl frá kl. 08:30-09:30. Fræðslan fer fram í fjölnotasal skólans en í henni verður farið yfir sjálfsmyndina og þá ýmsu þætti sem hafa áhrif á okkur frá degi til dags. Einnig er farið yfir hvernig við getum öll lagt okkur fram að eiga heilbrigð og uppbyggileg samskipti, bæði í vinasamböndum og í samskiptum á netinu.
Hvetjum alla til að mæta og hlökkum til að sjá sem flesta.
Nemendur í 7.-10. bekk fá fræðslu í kjölfar fyrirlesturs foreldra.