Fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna

Haldið var upp á fánadag heimsmarkmiðanna í Stapaskóla með því að draga fána heimsmarkmiðanna að húni. Nemendur allt frá leikskólastigi upp í 10. bekk gengu í verkið, eins og má sjá á meðfylgjandi myndum. Dagurinn markar upphaf sjálfbærnistarfs skólans en í því fá nemendur tækifæri til þess að kynnast og vinna að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Fánadagurinn, sem haldinn er í þriðja sinn á Íslandi, var skipulagður af UN Global Compact á Íslandi í samstarfi við Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (UNA Iceland). Með þessum viðburði lögðu nemendur okkar sitt af mörkum til að vekja athygli á mikilvægi Heimsmarkmiðanna undir slagorðinu „Saman fyrir Heimsmarkmiðin“ eða #TogetherForTheSDGs.