Hrekkjavaka

í Stapaskóla var hrekkjavökuhátíðin haldin hátíðleg í dag. Allar tvenndir voru skreyttar í morgun þegar nemendur og kennarar mættu í búningunum sínum til skóla og vinnu. 

Hrekkjavaka eða Halloween er haldin ár hvert daginn og nóttina fyrir Allraheilagramessu sem tileinkuð er píslarvottum kirkjunnar. Halloween kemur upprunalega frá Skotum og Írum en þar var hátíðin kölluð samhein, Fólkið klæddist búningum og kveikti í bálköstum til þess að hræða draugana sem kæmu vegna allraheilagramessu. Þegar Skotar og Írar fluttust búferlum til Ameríku á 19. öld fluttist Halloween hátíðin með þeim, Þar þróaðist hún með tímanum í þá hrekkjavöku hátíð sem við norðurlandabúar þekkjum úr sjónvarpsþáttum og kvikmyndum í dag.