Dagur íslenskrar tungu í Stapaskóla

Dagur íslenskrar tungu, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, var haldin hátíðlegur í Stapaskóla s.l. föstudag með fjölbreyttri dagskrá. Nemendur og starfsfólk skólans héldu upp á daginn til að minna á mikilvægi íslenskunnar, tungumálsins sem tengir okkur saman og heldur á lofti menningu okkar og sögu.

Nemendur í 1.-6. bekk komu hvert af öðru fram og fluttu atriðin sín fyrir samnemendur í Tröllastiganum. Börnin fluttu bæði söng og upplestur og skapaðist hlý og ánægjuleg stemming. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hvað þau fluttu atriðin sín af einlægni og stolti.

Nemendur í 7. – 10 bekk komu einnig saman í Tröllastiganum. Katla Diljá í 8. bekk las upp ljóð sem hún vann með í Stóru upplestrarkeppninni s.l. mars. Að því loknu rétti hún tveimur nemendum í 7. bekk Stóra upplestrarkeppnis keflið sem markar upphaf æfinga hjá 7. bekk þar sem þau taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni eftir áramót. Einnig var haldin lífleg og skemmtileg spurningakeppni milli kennara og nemenda. Keppnin fór fram í góðu hófi með húmor í fyrirrúmi. Ekki skemmdi það fyrir að nemendur stóðu sig með prýði og höfðu að lokum betur gegn kennurunum.

Dagskráin í heild sinni var bæði fræðandi og skemmtileg og endurspeglaði vel mikilvægi íslenskrar tungu í skólastarfi okkar.