Árshátíð Stapaskóla 2023

Árshátíð Stapaskóla fór fram á sal skólans hjá yngsta- og miðstigi síðastliðinn föstudag en kvöldið áður var árshátíð unglingastigs og ball að henni lokinni.

Allir árgangar voru með atriði árshátíðinni auk þess sem leiklistahópur af unglingastigi lék og söng atriði úr söngleikjamyndinni Mamma Mía.

Hátíðin heppnaðist vel og gleði ríkti hjá nemendum við að sýna áhorfendum sín atriði.

Hér má sjá myndasafn frá árshátíð Stapaskóla 2023.