Skólaslit

Í október munu nemendur á mið- og unglingastigi taka þátt í lestrarupplifun sem Ævar vísindamaður stýrir. Verkefnið er afrakstur styrks sem Reykjanesbær fékk upphaflega til þess að efla áhuga drengja á lestri. Verkefnið hefur þróast út í nýstárlega lestrarupplifun með áherslu á skapandi og verklega vinnu ásamt því að áhugasvið og hugmyndir nemenda fái að njóta sín á fjölbreyttan hátt.

 Verkefnið er saga eftir Ævar sem ber heitið Skólaslit og birtist á síðunni www.skolaslit.is á hverjum degi í október. Nemendur á mið- og unglingastigi munu taka þátt í verkefninu á skóladögum en viljum við hvetja ykkur, kæru foreldrar til að taka þátt í verkefninu um helgar. Það er auðvitað hægt að skrá það sem heimalestur. Einn kafli birtist á hverjum degi í október og birtist síðasti kafli sögunnar á sjálfri hrekkjavökunni, en sagan er hrollvekja fyrir börn og unglinga.

 Hér má sjá heimasíðu skólaslita og hér má sjá kynningu frá Ævari