Upplestur fyrir nemendur í 3. og 4. bekk.

PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum.

Bergrún Íris Sævarsdóttir kom í heimsókn til okkar í Stapaskóla og las fyrir nemendur í 3. og 4. bekk úr nýju bókinni sinni, PóGó og prumpið sem bjargaði heiminum. Heimsóknin var bæði fræðandi og skemmtileg.

Bókin segir frá geimverunni PóGó sem heldur í leiðangur til jarðar og kynnist þar fjölbreyttum hópi barna. Sum þeirra nota hjólastól, önnur eru einhverf eða með ADHD og í hópnum eru líka börn með CP. ÖBÍ réttindasamtökin báðu Bergrúnu að skrifa spennandi og skemmtilega sögu fyrir öll börn þar sem allar aðalpersónurnar væru með fötlun og ævintýrið fengi að njóta sín.

Í gegnum fyndnar og umhugsunarverðar aðstæður kynnast lesendur fjölbreytileika mannlífsins og fá tilefni til að ræða fordóma, staðalmyndir og mannréttindi. Ævintýri PóGó minna okkur líka á að það er í lagi að spyrja, læra af öðrum og viðurkenna þegar okkur verður á.

Við þökkum Bergrúnu kærlega fyrir komuna og skemmtilegan lestur.